Veðurfréttamaður vekur athygli: „Byrjum á að skoða helvítis kortið“ – Myndband

Myndband sem Kristján Freyr Halldórsson, rokkstjóri og fjölmiðlamaður, birti á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi hefur vakið kátínu margra.

Í myndbandinu má sjá veðurfréttamann RÚV byrja veðurfréttirnar á setningu sem heyra má á tvo vegu. Annars vegar svona:

„Já, komið þið sæl. Ef við byrjum á því að skoða yfirlitskortið og þróunina næstu daga ...“

Og hins vegar svona:

„Já, komið þið sæl. Ef við byrjum á því að skoða helvítis kortið og þróunina næstu daga ...“

Miðað við veðrið hér á landi síðustu vikur myndu fáir veita því sérstaka athygli þó veðurfréttamaðurinn myndi tala um „helvítis“ kortið en vitanlega segir hann „yfirlitskortið“.

Færsla Kristjáns vakti töluverða athygli og höfðu margir gaman af henni. „Eina sem ég heyri núna,“ segir til dæmis í einni athugasemd.