Veður­fræðingur gagn­rýnir fjöl­miðla: „Hóf­legasta fyrir­sögn á rauðri við­vörun sem ég hef séð“

Birta Líf Kristins­dóttir, veður­fræðingur á Veður­stofu Ís­lands, gagn­rýnir fyrir­sögn RÚV þar sem fjallað er um ó­veðrið sem er yfir­vofandi víða á landinu.

„Þetta er sú allra hóf­legasta fyrir­sögn á rauðri við­vörun sem ég hef séð,“ segir Birta í Twitter færslu, en fyrir­sögnin hjá RÚV var: „Norðan­stormur í að­sigi.“

Hún nefnir þá nokkrar til­lögur eins og: „Snældu­vit­laust veður í vændum“ eða „Veður­fræðingar sjaldan séð á­líka úr­komu í spám“ eða „Með því versta sem sést.“

„Nei bara hug­myndir,“ segir hún.

Lýst hefur verið yfir ó­vissu­stigi á Vest­fjörðum og Austur­landi vegna veðurs og mikillar úr­komu og hugsan­legra sam­göngu­truflana. Þá er einnig ó­­vissu­­stig og appel­sínu­gul við­vörun á Suður­landi vegna hvass­viðris og hugsan­­legra sam­­göngu­truflana.

Rauð veður­við­vörun, eða hættu­­stig, er á Norður­landi eystra og Austur­landi vegna veðurs, mikillar úr­­komu og hugsan­­legra sam­­göngu­truflana.