Óli Þór Árnason, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, varar við veðurbreytingum við gosstöðvarnar.
„Ég myndi halda að þetta verði norðan 5-10 en gæti farið eitthvað örlítið yfir það ef maður stendur uppi á fjalli til dæmis,“ segir Óli Þór í samtali við Fréttablaðið.
„Ég veit að fólk freistast til að skoða yfirborðsvindakort, og þau passa ágætlega við láglendið, en þetta er náttúrlega ekki láglendi. Maður er kominn upp í 300 metra hæð þarna. Það er meiri vindur í lofti en maður heldur,“ segir Óli Þór og bætir við: „Maður getur ekki bara litið á veðrið í garðinum hjá sér þegar maður leggur af stað og gert ráð fyrir að það verði eins þegar maður kemur á svæðið.“
„Gasmengunin fer beint til suðurs og líklega yfir megnið af þessum gönguleiðum sem eru þarna fyrir. Seinnipartinn og undir kvöld fer hún að verða vestanstæðari og gasmengunin færist þá austar sem líklega fríar eitthvað af gönguleiðunum,“ segir hann.
Óli Þór varar hins vegar við næstu nótt. „Það sem gerist næstu nótt er að lægir eiginlega algerlega. Það er kannski það varasamasta því þá safnast gasmengunin fyrir í þessum lautum og lægðum á svæðinu. Það eru líklega hættulegustu aðstæðurnar,“ segir hann.
Í fyrramálið er spáð sunnan- og suðaustangolu og þá færist mengunin til norðurs, yfir Voga, Vatnsleysuströnd og jafnvel til Keflavíkur að sögn Óla Þórs. Þá á hitinn líka að hækka. „Þannig að það verður eitthvað lágskýjað á svæðinu og eftir því sem líður á daginn bætist við vindur og úrkoma. Það verður bara skítaveður á svæðinu annað kvöld.“
Óli Þór segir að það verði töluverður lægðagangur á svæðinu eftir helgi.
„Dagurinn í dag myndi ég halda að verði bjartastur, þurrastur og skástur. Síðan á morgun er þetta orðið þungbúið, suddi og rigning. Það verður þungbúið á laugardaginn og eitthvað takmarkað skyggni. Á Sunnudag verður sæmileg lægð með mikilli rigningu og líka á mánudaginn og þriðjudaginn. Miðvikudagurinn kemur með eitthvað bland í poka.“
Um gasmengunina segir Óli Þór að enn vanti fullkomnar mælingar en sé gosið kraftmeira sé líklega meira gas í loftinu.
„Maður hefur áhyggjur af því að fólk stilli sig inn á minnsta vindinn, en það gætu líka orðið hættulegustu aðstæðurnar,“ segir hann.
Til að vindurinn nái til höfuðborgarsvæðisins þarf hann að vera. Í fyrra voru að mælast reykstig sem voru yfir heilbrigðisviðmiðum í stuttan tíma að sögn Óla Þórs. „Strax í fyrramálið er vindurinn að snúast í suðlægar áttir, sem er kannski verra fyrir byggðirnar. Þeir sem eru viðkvæmir fyrir slíku kunna að verða að loka gluggum og takmarka útiveru eitthvað,“ segir hann.