Varð fyrir áfalli vegna afstöðu fjölda þingmanna til þungunarrofs

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingkona Pírata, segist hafa orðið fyrir hálfgerðu áfalli árið 2019 þegar ný þungunarrofslöggjöf var rædd á þingi vegna afstöðu margra þingmanna til frumvarpsins.

Þórhildur rifjar þetta upp á Twitter og svarar þar Steinunni Ýr, sem veltir fyrir sér hvort álíka bakslag og það sem virðist vera í aðsigi í Bandaríkjunum, geti átt sér stað hér. Eins og lesendur flestir vita láku drög frá hæstarétti Bandaríkjanna í gær út um fyrirhugaðar tillögur að því að fella úr gildi eitt frægasta dómafordæmi í heimi, Roe vs. Wade frá árinu 1973 sem tryggir að það sé ólöglegt fyrir ríki að banna þungunarrof.

„Gætum við eh tímann séð álíka bakslag í feminískri baráttu á Íslandi og í BNA? Ræðum það aðeins. Hvað haldið þið og ef já hvað þurfti til?“ spyr Steinunn og bætir við:

„Ég held því miður að já það er möguleiki ef við höldum áfram að grafa undan lýðræðinu.“

Spurð hvort hún hefði reynslu

Þórhildur Sunna svarar Steinunni. „Ég varð fyrir hàlfgerðu áfalli að upplifa hversu margir þingmenn voru hart á móti nýju þungunarrofslöggjöfinni 2020. Hélt að við sem samfélag værum lengra komin. Ég var ma í alvöru spurð af þingmanni Miðflokksins hvort ég hefði “reynslu af þessu” í umræðum um málið í þinginu!“

Þá bætir Þórhildur við lista af þingmönnum sem kusu gegn frumvarpinu, þar á meðal var Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins.

„Þetta var víst 2019 en hér má sjà þá sem greiddu atkvæði gegn frjósemisfrelsi kvenna. Þarna eru ma, formaður sjálfstæðisflokksins, þingflokksformaður sama flokks og forseti Alþingis.“