Erna Bjarnadóttir, varaþingmaður Miðflokksins, er komin í felur eftir þá umdeildu ákvörðun Birgis Þórarinssonar að færa sig um set úr Miðflokknum yfir í Sjálfstæðisflokkinn.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir blaðamanna til að ná í Ernu hefur það ekki tekist og lætur hún ekki ná í sig. Þá greindi Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, frá því í fréttum RÚV í gær að ekki hefði náðst samband við Ernu.
Morgunblaðið greindi frá því á laugardag að Erna, sem er annar maður á lista Miðflokksins í Suðurkjördæmi og varamaður hans á þingi, hefði stutt þessa ákvörðun Birgis.
„Það er öflugur varamaður, sem ég er með og hún styður mig í þessari ákvörðun,“ sagði Birgir í viðtali Morgunblaðsins.
Síðar sama dag var greint frá því að skrifstofa Alþingis hefði ekki fengið upplýsingar um það hvort Erna myndi fylgja Birgi yfir í Sjálfstæðisflokkinn. Ekki náðist í Ernu á laugardaginn og hefur hún raunar ekki látið ná í sig frá því að greint var frá málinu í laugardagsblaði Morgunblaðsins.