Fjörugar umræður hafa skapast á Twitter-síðu Jóns Gnarr, fyrrverandi borgarstjóra Reykjavíkur, vegna íslenska hreindýrastofnsins.
Í færslu sinni benti Jón á að hreindýr hafi verið flutt inn frá Noregi og íslenski stofninn sem slíkur geti varla talist merkilegur.
„Af hverju mega ekki vera hreindýr fyrir vestan líka? Byggja upp veiðiferðamennsku þar. Eina sem við þurfum að gera er að flytja inn meira frá Noregi,“ segir Jón.
Kári Gautason, varaþingmaður VG og sérfræðingur hjá Bændasamtökum Íslands, leggur orð í belg undir færslu Jóns og bendir á að íslenskt veðurfar sé stór þröskuldur í þessum efnum. Segir hann að réttast væri að skjóta hreindýrin sem eru á vappi fyrir austan.
„Það er mikill bjarnargreiði að dæma saklausar skepnur til þess að húka úti í skítaveðri allan veturinn. Réttast væri að skjóta öll hreindýrin fyrir austan.“ Jón Gnarr svarar því til að þetta sé líklegast rétt hjá honum.
Bent er á það að staðsetning stofnana á Íslandi hafi mikið með veðurfar að gera. „Flestir stofnar fyrir utan þá á austurlandi drápust úr kulda (þ.e.a.s. það rigndi og síðan fraus blautur feldurinn). Kjöraðstæður fyrir stofninn norðan við Vatnajökul því það er minni úrkoma að sökum jökulsins,“ segir til dæmis í einni athugasemd.
Sigríður Gísladóttir, dýralæknir sem skipaði 3. sætið á lista VG í Norðvesturkjördæmi í kosningunum, veltir því upp eins og Gauti hver eigi að bera ábyrgðina ef þau þrífast ekki hér á landi.
„Hver á að bera ábyrgð á þeirra vellíðan og velferð? Veðurfar er allt öðruvísi og langt frá því að vera hentugt fyrir dýr sem líður best í stabílu köldu vetrarveðri á veturna, en ekki slydduhraglanda og umhleypingum.“
hreindýr voru flutt inn frá Noregi. þessi "stofn" er varla neitt merkilegur. afhverju mega ekki vera hreindýr fyrir vestan líka? byggja upp veiðiferðamennsku þar. eina sem við þurfum að gera er að flytja inn meira frá Noregi
— Jon Gnarr (@Jon_Gnarr) October 7, 2021