Einar Kárason, varaþingmaður Samfylkingarinnar, segir að starfsfólk bókasafna ætti að vera á þreföldu kaupi um þessar mundir, eins konar stríðsálagi á meðan COVID-19 faraldurinn gengur yfir.
„Alma landlæknir sagði að veiran gæti lifað á sléttum flötum í 1 - 5 sólarhringa. Var því eðlilega spurð um bókasöfn, enda plastaðar bækur eins "sléttir fletir" og hugsast getur,“ skrifar Einar á Facebook. „Hún taldi litlar tölfræðilega líkur á að menn væru að taka eintök að láni sem einhver smitaður væri nýbúinn að handfjatla.“
Einar veltir þá upp spurningunni með starfsfólk bókasafna, en málið er honum skylt:
„Fólk sem slappast fer á safnið og nær sér í bækur sem það les og hnerrar og hóstar á, og réttir svo næsta bókaverði. Bókasafnsfólk ætti að vera á þreföldu kaupi, stríðsálagi! Rétt eins og þeir sem sigla fraktskipum á ófriðartímum.“