Aron Leví Beck varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar skilur ekkert í tillögunni sem borgarfulltrúar Sjálfstæðismanna lögðu fram í síðustu viku um að gripið verði til aðgerða gegn vargfugli í Reykjavík. Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi, segir að aðgerðirnar myndu vernda bæði mann- og dýralíf borgarinnar.
Í tillögunni er lagt til hertra aðgerða gegn mávi við Tjörnina í Reykjavík, og að spornað verði við mávavarpi í eyjum í Kollafirði. Kjartan, sem fór fyrir tillögunni, segir að mávurinn hafi slæm áhrif á dýralífið í miðborginni.
„Ég hef séð margar þrotaðar tillögur í borgarstjórn en þessi er ein sú súrasta. „Kjartan, sem fór fyrir tillögunni, segir að mávurinn hafi slæm áhrif á dýralífið í miðborginni." Hvað hefur Kjartan fyrir sér í því og hvað réttlætir eina tegund yfir aðra? Mávar eru stór hluti af dýralífi borgarinnar, like it or not,“ skrifar Aron Leví á Facebook og deilir þar frétt RÚV um málið.
Fyrrverandi þingmaður Hreyfingarinnar Þór Saari leggur orð í belg í athugasemdum og segir: „Endur eru góðar, mávar eru vondir og Kjartan Magnússon er fimm ára,“ skrifar Þór.