Vara­bæjar­full­trúi vill sjá nýjan þjóðar­leik­vang rísa í Hafnar­firði: „Svarið er aug­ljóst“

Árni Stefán Guð­jóns­son, vara­bæjar­full­trúi Við­reisnar, segir ekkert því til fyrir­stöðu að nýr þjóðar­leik­vangur rísi í Hafnar­firði. Þetta kemur fram í aðsendri grein á Vísir.is

„Nú um mundir er unnið að undir­búningi vegna þjóðar­leik­vangs fyrir knatt­spyrnu sem er fyrir­hugaður í Laugar­dal í Reykja­vík. Þessi nýi leik­vangur er fagnaðar­efni fyrir alla unn­endur knatt­spyrnu og boðar nýja tíma fyrir alla lands­menn,“ skrifar Árni .

„Það er þó eitt sem hefur að­eins gleymst í um­ræðunni en það er hvar lands­liðið á að leika á meðan smíðinni stendur, þar sem völlurinn verður ó­leik­hæfur í 3-5 ár á meðan unnið er að niður­rifi, flutningi veitu­mann­virkja og upp­byggingu.“

Hann segir knatt­spyrnu­á­huga­fólk þekkja þetta vel frá Lundúnum þar sem enska knatt­spyrnu­liðið Totten­ham Hotspur spilaði heima­leiki sína um tíma á Wembl­ey meðan nýr leik­vangur var byggður.

„Vandi okkar Ís­lendinga er sá að hér er ekki fyrir neinum Wembl­ey að skipta. Ef við rennum snöggvast í gegnum þar­fa­greiningu fyrir slíkan völl þá þarf hann að hafa gras­völl, yfir­byggða stúku, góða tengda að­stöðu og mögu­leika á því að koma því sem næst 10.000 manns á völlinn. Með þetta í huga er svarið aug­ljóst: Kapla­kriki,“ skrifar Árni.

Hann segir að í Kapla­krika væri með ein­földum hætti hægt að byggja yfir norður­stúkuna og smíða tengi­byggingu milli norður- og suður­stúku með fleiri sætum þannig að hægt væri að taka á móti allt að 10.000 gestum.

Verk­efnið myndi þá einnig kalla á að yfir­borð vallarins yrði fært upp í blendings­gras (hybrid) með undir­hita sam­bæri­legt við velli á norður-Eng­landi.

„Þessar litlu og til­tölu­lega ein­földu breytingar kosta lík­legast innan við 10% af því sem nýr Laugar­dals­völlur kostar og eru ein­fald­lega hluti af því verk­efni. Þegar upp­byggingu á Laugar­dals­velli er lokið og lands­leikir færast þangað verður hægt að nýta hinn nýja Kapla­krika í lands­leiki yngri lands­liða, evrópu­leiki og margt fleira.“

„Hafnar­fjarðar­bær ætti án tafar að senda erindi inn til í­þrótta­mála­ráð­herra og bjóða Kapla­krika fram sem stað­gengil Laugar­dals­vallar á meðan á upp­byggingu hins síðar­nefnda stendur og óska eftir því að stjórn­völd styðji við þessa um­breytingu vallarins með sam­bæri­legum hætti og er fyrir­hugaður í Reykja­vík,“ skrifar Árni að lokum.