Íbúar í Lauganeshverfinu hafa séð mann sniglast í bakgörðum og kíkja inn um glugga. Hefur einn íbúi látið lögreglu vita. Í umræðum í hverfishóp á Facebook segist einn íbúi hafa séð mann á þrítugsaldri í bakgarðinum sínum á jóladag.
„Við erum búin að setja upp videokerfi og kastara... svo eigum mynd,“ segir íbúinn.
Annar íbúi sem kannast við slíkar mannaferðir tengir það við þjófnað. „Það var einn að fylgjast með húsinu okkar á Rauðalæk fyrir jól og síðan hvarf poki með Malt og appelsín blöndu úr bakgarðinum um miðja nótt núna á nýju ári.“
Nokkrir slá á létta strengi. „Örugglega aðkomumaður. Líklega úr Fram-hverfinu, mögulega samt úr Kópavogi. Nema þetta sé árrisull veiðimaður að leita að möðkum fyrir vorveiðina,“ segir íbúinn fyndni. „Svo var þetta kannski bara einhver góðglaður að reyna laumast inn um glugga inn til sín (eða kærustunnar/kærastans) án þess að foreldrarnir yrðu þess vör?“
Umræðan rataði inn á Twitter, þar segir Katrín Atladóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, að viðkomandi sé velkomið að taka jólatré úr sínum garði.
„Jólatréð mitt er komið út í garð, vona viðkomandi taki það og haldi gleðileg jól með malti og appelsíni og jólatré.“