Vara við grun­sam­legum sím­tölum úr ís­lenskum númerum

Lög­reglunni á höfuð­borgar­svæðinu hafa borist til­kynningar um grun­sam­leg sím­töl, bæði úr ís­lenskum og er­lendum númerum.

Sá sem er á hinni línunni reynir að fá fólk til að gefa upp per­sónu­upp­lýsingar og/eða fara í við­skipti með raf­myntir, en í að minnsta kosti einu til­felli virðist vera um Ís­lending að ræða sem hringir.

„Ís­lensku síma­númerunum var út­hlutað til fyrir­tækja sem seldu þau úr landi og eru þau m.a. notuð fyrir net­síma sem erfitt er að rekja,“ segir í tilkynningu lögreglu.

Lög­reglan á höfuð­borgar­svæðinu varar við því að fólk svari ó­um­beðnum sím­tölum um við­skipti með raf­myntir og sím­tölum þar sem reynt er að fá upp úr fólki per­sónu­upp­lýsingar.