Veðurstofa Íslands varar við ferðum á Norðurlandi eystra í kvöld eftir að gul viðvörun tekur gildi. Hún tekur gildi klukkan 22 í kvöld og verður í þrjá klukkutíma, til klukkan 01 í nótt.
Þar er spáð miklum stormi og getur orðið virkilega hvasst á vissum stöðum á Eyjafjarðarsvæðinu og utanverðum Tröllaskaga. Þar gætu vindhviður náð allt að 40 metrum á sekúndu.
Íbúar svæðisins eru eindregið hvattir til að festa lausamuni utandyra eða koma þeim í öruggt skjól áður en stormurinn skellur á.