Þjálfarar 4. flokks kvenna í Breiðablik hafa sent frá sér bréf til foreldra stúlkna í flokknum þar sem mælst er til þess að leikmenn á yngra ári í flokknum fari ekki á ball og í sundlaugapartý sem haldið er í tengslum við alþjóðlega knattspyrnumótið ReyCup sem hefst í Reykjavík á morgun.
Þetta kemur fram í frétt Fréttablaðsins sem hefur bréfið undir höndum.
Þjálfararnir segja mismunandi aldursstig þátttakenda, sitthvora menningarheima sem og sögusagnir frá fyrri viðburðum standa að baki afstöðu þeirra, en stjórnendur Rey Cup segja í svörum til Fréttablaðsins að allt sé unnið eftir bókinni við skipulagninguna. Stelpurnar sem um ræðir eru í 8. bekk og því 13 til 14 ára gamlar.
„Það hefur verið myndast einhver umræða undanfarið með ball og sundlaugarpartý á Rey Cup og afstöðu okkar þjálfara á að leikmenn á yngra ári í 4.flokki fari ekki á þá viðburði,“ segir í bréfi frá þjálfurum Breiðabliks til foreldra stúlkna í 4. flokki hjá félaginu sem Fréttablaðið hefur undir höndum.
Þjálfararnir vildu með bréfinu koma á framfæri afstöðu sinni sem þeir segja að feli samt sem áður ekki í sér að leikmönnum sé bannað að fara á ballið eða í sundlaugarpartýið.
„Að sama skapi er okkar afstaða gagnvart þessum tveimur skemmtunum sú að stelpur á yngra ári í 4.flokki hafa ekki erindi á. Það er því algjörlega á ábyrgð foreldra hvort þeir ákveði að senda barnið sitt á þessa viðburði eða ekki. Venjan er sú að 3.flokkur kvenna Breiðabliks hefur verið að fara á Rey Cup og því teljum við þær ekki vera að missa af einhverju þegar þeim býðst að fara þegar þær eru komnar í 3.flokk.“
Sú skoðun þjálfara Breiðabliks að stelpur á yngra ári í 4. flokki, stelpur í 8. bekk í grunnskóla fari ekki á umræddar skemmtanir, byggist á nokkrum þáttum, að því er fram kemur í bréfinu til foreldra stúlknanna:
„Þarna eru saman komin krakkar á mjög mismunandi aldursstigum (okkar stelpur á yngsta aldursstiginu) og frá sitthvorum menningarheimum. Rey Cup setur þetta upp eins og grunnskólaball sem er haldið fyrir börn í 8-10 bekk en þegar þú ert með leikmenn sem koma frá mörgum mismunandi menningarheimum þá finnst okkur ekki hægt að bera þessa tvo hluti saman.“
Þá rifja þjálfararnir upp atvik í tengslum við svipaðar skemmtanir á árum áður í bréfinu:
„Árið 2017 þá kom upp atvik þar sem stúlka á yngra ári í 4.flokki kvenna var áreitt af tveimur erlendum leikmönnum í sundlaugapartýinu. Annað atvik átti sér stað á ballinu þetta sama ár þar sem eldri dómari var í “kappsleik” við eins margar stelpur og hann gat.“
Þjálfarar Breiðabliks segjast treysta sínum stelpum 100% þegar kemur að því að haga sér. „En það eru aðstæðurnar, aldursmunur og þessir ólíku skoðanir og menningarheimar á hópnum sem við höfum áhyggjur af.“
Hægt er að lesa svar Rey Cup til foreldra og bréfið í heild sinni í frétt Fréttablaðsins hér.