Var við gosstöðvarnar og greindist síðar með veiruna: „Getur hæglega komið upp stór útbreiðsla í kringum þennan troðning“

Sex manns greindust með veiruna innanlands í gær en af þeim var aðeins einn utan sóttkvíar við greiningu. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir greinir frá því í samtali við Fréttablaðið að einstaklingurinn sem greindist utan sóttkvíar hafi farið að sjá gosið í Geldingadal fyrr í vikunni.

„Þegar maður horfir á þann mikla fjölda sem hefur komið þar daglega undanfarna daga og þennan mikla troðning sem er í kringum svæðið hefur maður vissulega áhyggjur af smithættu við þessar aðstæður," segir Þórólfur í samtali við Fréttablaðið.

Fjölmargir hafa haldið að gosstöðvunum frá því að gosið hófst fyrir viku en á hverjum degi hafa þúsundir manna farið á svæðið. Mikill fjöldi fólks er því vanalega samankominn þar og virðast sóttvarnir ekki vera í miklum forgangi.

„Ég vil hvetja fólk til að slaka aðeins á að heimsækja gosstöðvarnar núna á meðan við erum að reyna að ná tökum á þessum faraldri. Það getur hæglega komið upp stór útbreiðsla í kringum þennan troðning sem þarna er," segir Þórólfur.

Hann segir að þrátt fyrir að flestir hafi verið í sóttkví við greiningu í gær þá valdi þetta eina tilfelli áhyggjum þar sem það geti þýtt að veiran sé útbreiddari í samfélaginu en áður var talið.

Tíu manna samkomubann er nú í gildi á landinu öllu en gripið var til hertra aðgerða á miðvikudaginn vegna fjölgun smita í samfélaginu. Flestir sem eru nú að greinast eru með breska afbrigði veirunnar sem er mun meira smitandi og leggst þyngra á fólk, ekki síður börn.

Takmarkanirnar sem kynntar voru í vikunni verða í gildi næstu þrjár vikur en þær verða þó í stöðugri endurskoðun. Ef fleiri smit halda áfram að greinast má gera ráð fyrir að takmarkanirnar vari lengur.