Var hótað líf­láti í Söngva­keppninni

Tón­listar­konan Hildir Kristín Stefáns­dóttir var hótað líf­láti á meðan hún tók þátt í Söngva­keppni Sjón­varpsins árið 2017.

„Já, ég fékk líf­láts­hótun. Ég held að þessi manneskja hafi verið mikill að­dáandi annars keppanda. Ég var með „missed call“ frá þessu sama númeri og svo skila­boð sem inni­héldu þessa líf­láts­hótun. Þetta var áður en ég steig á svið og keppti, áður en ég söng í keppninni.“

Hildur opnaði sig um málið í þættinum Á rúntinum. Hún segir að sér hafi ekki staðið á sama, hún hafi hugsað hvað hún væri búin að koma sér út í. Mikil­vægt sé að brynja sig fyrir slíku en þó séu dagar þar sem svona lagað nái í gegn.

„Allir eru mann­legir. Ég man eftir einum degi þegar ég var orðin þreytt og lítil í mér og ég fékk ömur­legt skila­boð á Snapchat og mig langaði bar að hætta, ég nennti þessu ekki. Svo aðra daga, þegar ég var á góðum stað, þá var hugsaði ég bara, hvað er að þessu fólki?“ segir hún.

„Þetta minnir mann á að sama hversu sterkt fólk er þá getur alltaf komið sú stund þar sem þú ert lítill í þér, þreyttur eða eitt­hvað annað sem veldur því að þú tekur þessi illa.“