Var gossvæðinu lokað vegna gasmengunar? „Það var enginn frá okkur þarna í morgun“

Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur klórar sér í kollinum yfir fréttum þess efnis í morgun að gossvæðinu við Fagradalsfjall á Reykjanesi hafi verið lokað vegna gasmengunar.

Einar viðrar þetta í færslu á Facebook-síðu sinni, en allir helstu fjölmiðlar landsins greindu frá því að svæðinu hefði verið lokað vegna gasmengunar. Í færslu sem birtist á Facebook-síðu Lögreglunnar á Suðurnesjum í morgun sagði til dæmis:

„Við mælingar í morgun kom í ljós að gasmengun er á svæðinu og er mælingin komin upp fyrir hættumörk. Svæðið við gosstaðinn er því lokað og er fólk beðið um að virða þá lokun. Mjög hættulegt er að nálgast gosið eins og er.“

Einar segir í færslu sinni að það sé ekkert óeðlilegt að loka á umferð við gossvæðið vegna veðurs í dag nú þegar gengur á með dimmum éljum og stormi með hryðjunum.

„Hins vegar klóra ég mér í kollinum yfir þeim fregnum að gasmengun í morgun hafi ekki mælst bara hættuleg, heldur MJÖG hættuleg! Hér vantar talsvert upp á upplýsingagjöfina. Hvaða gas eða gös voru það sem mældust af háum styrk? Hvert er viðmiðið? Hvar var mælt nákvæmlega (það skiptir máli) og var þetta ein stök mæling eða hluti almennrar vöktunar?“

Þá segir Einar að það sem verra er sé að engar upplýsingar sé að finna um þessa mjög hættulegu gasmengun, ekki á síðu Almannavarna, ekki Veðurstofunnar og heldur ekki hjá Umhverfisstofnun.

„Frá því að gosið hófst hefur verið strekkingur lengst af af suðri og nú af suðvestri. Brennisteinssamböndin eru í blámóðunni sem stígur upp af gosopinu og hraunbreiðunni. Vissulega kunna að mælast gös, t.d. koltvísýringur og kolsýrlingur í nokkrum styrk norðan og norðaustanmegin, þ.e. í eimyrjunni miðri. En þangað fer heldur engin sem aflað hefur sér upplýsinga og vill að bera ábyrgð á sjálfum sér.“

Elín Björk Jónasdóttir, hópstjóri veðurþjónustu á Veðurstofu Íslands, segir í athugasemd við færslu Einars að þetta sé einhver misskilningur í fjölmiðlum. „Það var enginn frá okkur þarna í morgun. Líklega er um að ræða mæla björgunarsveitafólks,“ segir hún en Einar svarar að bragði og segir að þessar upplýsingar skipti máli. „Já, algjörlega, við erum búin að vera að reyna að finna út úr þessu, lásum þetta líka bara í fjölmiðlum,“ svarar Elín.

Hjördís Guðmundsdóttir, samskiptastjóri Almannavarna, sagði í samtali við fréttavef DV að stutta svarið varðandi lokunina væri slæmt veður og hætta á gasmengun. Virtist ekki vera sem raunveruleg gögn um mengun lægju fyrir.

Elín Björk sagði í hádegisfréttum RÚV að spáin fyrir morgundaginn væri betri en hún viðurkenndi þó að hún hefði áhyggjur af gasmengun á svæðinu. Sagði hún að öruggast yrði fyrir fólk að vera á toppunum í kringum gosstöðvarnar og alls ekki hætta sér niður að gosstöðvunum.