Var fluttur nauðugur til föður síns úr lyfjagjöf en segir pabba sinn beita sig ofbeldi

Barn sem flutt var nauðugt til föður síns úr lyfjagjöf á Landspítalanum í sumar til föður síns segir hann beita sig ofbeldi. Fréttablaðið greinir frá málinu.

Mál drengsins var til umræðu og vakti mikla athygli fyrr á þessu ári þegar sýslumaður framkvæmdi aðfararaðgerð á Landspítalanum til að koma honum í umsjá föður. Drengurinn var á Landspítalanum í lyfjagjöf.

Drengurinn lýsir ljótu ofbeldi í viðtali við sérfræðinga í Barnahúsi og þær koma fram í umfjöllun Fréttablaðsins. Barnið hefur verið neyðarvistað hjá móður sinni.

Frétt Fréttablaðsins í heild sinni má lesa hér.