Var ekið í hjólaskóflu í gegnum Strákagöng

Árni Óðinsson er einn af mestu afreksmönnum skíðaíþrótta á Íslandi en hann varð fyrst Íslandsmeistari í stórsvigi árið 1968. Eftir það áttu margir titlarnir eftir að bætast í verðlaunasafnið en hann hóf ungur að stunda skíðamennsku í Hlíðarfjalli við Akureyri þar sem hann hefur búið mest alla ævina. Árni lítur út eins og ungur maður í dag, tágrannur og enn mjög liðtækur á skíðum en fyrir nokkrum árum ákvað hann að prófa skíðagöngu samhliða alpagreinum. Árangur lét ekki á sér standa og hleypur Árni enn um á gönguskíðum upp og niður Hlíðarfjall þegar honum hentar og hefur þar að auki tekið þátt í hinni heimsfrægu Vasa göngu sem er 90 km leið og fer fram í Svíþjóð árlega. Í viðtali við þáttastjórnandann Sigurð K. Kolbeinsson segir Árni frá sinni stærstu reynslu á ferlinum þegar hann tók þátt í Vetrarólympíuleikunum í Innspruck árið 1976 ásamt þeim Hauki Jóhannssyni, Sigurði H. Jónssyni og Tómasi Leifssyni. Árna var falið að vera fánaberi Íslands við setningarathöfnina og ferðin var honum sem öðum þátttakendum ógleymanleg þó svo að árangur hefði ekki verið skv. væntingum. Árni hafði nokkrum árum áður verið að störfum í Bandaríkjunum sem „Ski patrol“ fyrir milligöngu Magnúsar Guðmundssonar sem lést nýlega 90 ára að aldri. Það var eins konar draumastarf að mati Árna og hann naut þess að dvelja þar í nokkra mánuði ásamt nánasta skíðafélaga sínum Hauki Jóhannssyni. Árið 1967 var verið að ljúka við gerð Strákaganga þegar nokkrir Akureyringar fóru á hið fræga Skarðsmót á Siglufirði en það mót var eins konar „slut“ skíðamanna í þá tíð og fór fram um Hvítasunnuna en þá var enn nægur skíðasnjór í þá daga á Skarðsdal. Árni segir skemmtilega frá því þegar þeir félagar komu að vestari gangnamunanum með skíðabúnað sinn og annan nauðsynlegan varning og var ekið í hjólaskóflu langleiðina í gegnum göngin sem enn voru ekki tilbúinn fyrir bílaumferð. Máttu þeir síðan ganga síðustu metrana í gegnum hin nýju göng þar sem tekið var á móti þeim austan megin og þeim ekið inn í þorpið. Árni er mikill fjölskyldumaður og þó svo hann hafi lokið störfum er hann alltaf að og festi nýverið kaup á trillu sem hann á með syni sínum og gerð er út frá Hjalteyri þar sem Árni fæddist árið 1950 og bjó á sínum fyrstu æviárum. Hann nýtur lífsins enda við frábæra heilsu og á eftir að stunda skíðin eins lengi og heilsan leyfir.

Hlaðvarpið Lífið er lag er hægt að nálgast á Spotify sem og flestum öðrum streymisveitum og einnig á heimasíðunni ferdaskrifstofaeldriborgara.is