„Pabbi hefur safnað þessu í gegnum tíðina og ég er að selja þetta fyrir hann,“ segir Kristín Sigurðardóttir í samtali við Hringbraut. Kristín setti athyglisverða auglýsingu inn í Facebook-hópinn Brask & brall í gærkvöldi.
Kristín freistar þess nú að selja líklega eitt stærsta safn landsins af pennum, en alls er um að ræða sjö þúsund stykki og eru þeir merktir hinum og þessum fyrirtækjum eða stofnunum.
Auglýsingin hefur vakið talsverða athygli og þegar þetta er skrifað hafa verið skrifaðar tæplega 230 athugasemdir við auglýsinguna.
„Fólki finnst aðallega fyndið að einhver eigi svona mikið af pennum,“ segir Kristín um viðbrögðin en aðspurð segir hún að pennarnir séu enn til sölu. „Það eru einhverjir sem hafa sýnt þessu áhuga þannig að það virðast vera einhverjir safnarar þarna úti.“
Kristín segir að safnið sé orðið um 30 til 40 ára gamalt og innan um nýlega penna séu gamlir pennar sem ef til vill eru sjaldséðir nú til dags. Hægt er að kynna sér málið nánar á Facebook-síðu Brasks og bralls.