Vann 35,4 milljónir um síðustu helgi: Ætlar að gera eitt­hvað fal­legt fyrir mömmu og pabba

Rúm­lega fer­tugur karl­maður hélt að ein­hver væri að gera grín í honum þegar starfs­maður Ís­lenskrar get­spár hringdi í hann á mánu­dag og tjáði honum að hann væri 35,4 milljónum króna ríkari.

Maðurinn var í vinnunni þegar sím­talið kom og er ó­hætt að segja að það gleymist seint. Maðurinn hafði keypt sér miða í gegn lottóappið sem tryggði honum milljónirnar 35.

Í til­kynningu frá get­spá kemur fram að maðurinn hafi sagt til­finninguna al­gjör­lega ó­lýsan­lega. „Fyrsta verk verður að greiða niður skuldir, setja út­borgun í íbúð og svo verð ég að gera eitt­hvað virki­lega fal­legt fyrir mömmu og pabba og líka dóttur mína“ sagði vinnings­hafinn.

Alls voru rúmar 70,9 milljónir í pottinum síðasta laugar­dag en tveir heppnir miða­eig­endur voru með allar tölurnar réttar. Hinn miðinn var seldur hjá Kvikk, Suður­felli 4 í Reykja­vík en sá vinnings­hafi hefur enn ekki gefið sig fram.

Ís­lensk get­spá hvetur því alla sem keyptu sér miða þar að fara vel yfir þá.