Upplýsingafulltrúi Ríkislögreglustjóra hefur sent frá sér tilkynningu varðandi flóðljósin sem var beitt að fjölmiðlum á Keflavíkurflugvelli í vikunni þegar þeir reyndu að fylgjast með brottflutningi á hælisleitendum. Þar er játað ekki liggi fyrir hvar ákvarðanatakan liggur.
Það var öryggisgæsla flugvallarins sem beitti ljósunum, en Isavia greindi frá því í gær að lögreglan hefði fyrirskipað þeim að gera það.
Í tilkynningu lögreglunnar er gefið til kynna að ekki sé ljóst hver fyrirskipaði notkun ljósana.
„Á Keflavíkurflugvelli í gærmorgun var notast við ljós til þess að byrgja sýn fjölmiðla og annara sem stóðu utan girðingar Keflavíkurflugvallar.“ segir í tilkynningunni.„Lögregla leggur ríka áherslu á að fjölmiðlar hafi gott aðgengi að störfum lögreglu, ekki síður þeim verkefnum sem eru sérstaklega krefjandi.“
Þá kemur fram að lögregla ætli sér að funda með Isavia vegna málsins til þess varpa ljósi á hvar ákvarðanatakan liggur.
„Lögregla mun funda með ISAVIA í næstu viku í þeim tilgangi að fara yfir atvik málsins til að varpa ljósi á hvar ákvarðanataka liggur.“ og „Ekki stóð til að hindra störf fjölmiðla en fjölmiðlar höfðu mun greiðara aðgengi að myndun aðgerða lögreglu á fyrri stigum sama máls.“