Vandinn við skýrslu ríkisendurskoðunar um söluna á Íslandsbanka er það sem ekki kemur fram í henni. Þetta segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir þingmaður Viðreisnar.
„Við þekkjum flest þann stjórnunarstíl að yfirmaðurinn sparki í undirmennina. Sá stíll þykir yfirleitt ekki stórmannlegur. Fyrir páskafrí vakti athygli þegar Lilja Alfreðsdóttir viðskiptaráðherra sagði: „Ég er þó ekki á því að hægt sé að skella skuldinni alfarið á stjórnendur Bankasýslunnar og þykir miður að málið sé einfaldað þannig. Ábyrgðin hlýtur að vera stjórnmálamanna sem tóku ákvörðun í málinu“
Þorbjörg segir að þetta hafi forsætisráðherra hinsvegar gert á Alþingi í gær. „Enn hefur lykilspurningum um ákvarðanir ráðherranna um söluna ekki verið svarað. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar eru að vísu margvíslegar athugasemdir sem mikilvægt er að fái rýni. Á meðal þeirra þyngstu eru þau að fjármálaráðuneytið hafi gefið Alþingi misvísandi upplýsingar um mikilvæg atriði í aðdraganda sölunnar. Það er alvarleg gagnrýni,“ segir Þorbjörg í aðsendri grein á Vísi.
Vantar svör
„Vandinn við annars ágæta skýrslu Ríkisendurskoðunar eru svörin sem vantar. Vandinn er það sem skýrslan segir okkur ekki. Þar er ekkert fjallað um val ríkisstjórnarinnar á söluaðferð eða tímasetningu sölunnar. Ekkert er fjallað um kostnað við ráðgjöf. Ekkert er fjallað um hæfi fjármálaráðherra við söluna, í ljósi tengsla hans við einn kaupandann í lokuðu útboði,“ skrifar Bjarni.
„Ekkert er fjallað um framsal fjármálaráðherra á ákvörðunum við ferlið, m.a. um úthlutun til kaupenda. Þar er sem sagt ekkert fjallað um þær pólitísku ákvarðanir sem teknar voru í aðdraganda sölunnar - svo sem um samskipti eða meintan ágreining milli ríkisstjórnarflokkanna um söluaðferð eða um umræður innan ráðherranefndar um efnahagsmál þar sem allar stærstu ákvarðanir málsins voru til umfjöllunar.“