Vanda getur ekki orða bundist – Lætur fyrrverandi landsliðsmann heyra það

Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ, er ekki ánægð með gagnrýni sem íslenska karlalandsliðið hefur fengið á sig eftir síðustu þrjá landsleiki. Hún fjallar um þetta í færslu á Facebook.

Gagnrýnirn sem Vanda ræðir virðist beinast að Kára Árnasyni, fyrrverandi landsliðsmanni, sem nú starfar sem sparkspekingur hjá Viaplay. Eftir leik Íslands við San Marínó fjallaði Kári um myndbönd sem birtust af æfingum liðsins á samfélagsmiðlum. Hann virtist ósáttur með að þarna væru leikmennirnir sýndir í leik frekar en í ströngum æfingum.

Við því sagði Vanda:

„Sem fræðikona á sviði tómstunda- og félagsmálafræða og eineltisforvarna get ég ekki orða bundist um umræðuna um bros, gleði og leiki A landsliðs karla í fótbolta. Myndirnar og myndböndin sem um ræðir eru öll tekin í upphitun. Það er þekkt í "team-building" fræðunum að nota svokallaða ísbrjóta til að hita hópinn upp, efla tengs, kynnast betur og hafa gaman. Partur af því að auka samkennd, samvinnu og liðsanda. Sjálf hef ég kennt þessi vinnubrög í áratugi.

Sem formaður KSÍ vil ég segja að í venjulegu árferði hefur aldrei verið eins mikil umferð um samfélagsmiðla KSÍ og aldrei meira efni sett út. Að starfsfólk samskiptadeildar KSÍ sendi út myndir og myndbönd af leikmönnum í upphitun (því ekki viljum við setja myndbönd af taktískum æfingum) finnst mér mjög jákvætt. Að þjálfarar noti ísbrjóta í upphitun finnst mér sömuleiðis mjög jákvætt. Sjálf hef ég mjög gaman af þessu, hlæ oft upphátt og ég VEIT að þegar upphitun er lokið tekur alvaran við.“

Þá kemur Vanda skilaboðum til þjálfara barna á framfæri. Hún biður þá um að láta ummæli Kára ekki hafa áhrif á sig.

„Við þjálfara sem eru að þjálfa börn og fullorðna út um allt land vil ég segja: Látið þessa umræðu ekki hafa áhrif á ykkur, haldið áfram að nota ísbrjóta og leiki sem hlut af upphitun og hlut af liðsheildarvinnu.“

Þá ræðir hún meira almennt um landsliðið og spyr hvort sé betra að byggja upp liðið með jákvæðni eða neikvæðni.

„Til umhugsunar, svona almennt: Við erum með ungt lið, þeir hafa sjálfir sagt að neikvæðnin hefur slæm áhrif á þá. Hefur þessi umræða þau áhrif að þeir hætta að þora að hlægja á æfingum? Erum við með allri neikvæðninni að brjóta niður stoltið og sjálftraustið? Auka kvíða? Er þessi neikvæðni besta leiðin til að bæta árangur? Mér finnst uppbyggjandi gagnrýni sjálfsögð og tek henni fagnandi - nefni t.d. grein Viðars Halldórssonar á fotbolti.net. - en mér finnst umræðan oft á tíðum komin út fyrir það - og vera orðin skemmandi en ekki bætandi.

Ég ætla að vera í jákvæða-liðinu og skora á almenning að koma þangað með mér. Gríðarlega mikilvægur leikur við Ísrael á mánudaginn, áfram Ísland!“