Valur Jónsson, rútubílstjóri á áttræðisaldri sem hefur ekið rútubíl síðan 1977, segist gáttaður á ummælum Jóhannesar Þórs Skúlasonar, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar, í Fréttablaðinu í gær.
„Hann segir að hlutfall útlendinga sem starfar í ferðaþjónustu hér sé þriðjungur. Sannleikurinn er sá að það eru nánast allir sem starfa við ferðaþjónustuna útlendingar,“ segir Valur í samtali við Fréttablaðið í dag.
Í viðtali í blaðinu segir Valur að sá sem gistir á hótelum hringinn í kringum landið sjái vart Íslending starfa á gististöðum nema að morgni til að taka við peningum. Þá sé rútubílaflotinn gerður út til helminga með erlendu vinnuafli. Hlutfall fólks af erlendum uppruna á gististöðum og veitingahúsum, einkum á landsbyggðinni, sé nær því að vera 95% en þriðjungur.
„Það dugar ekki að sækja upplýsingar um þessi mál til Jóhannesar Þórs hjá Samtökum ferðaþjónustunnar af því að hann vinnur við að láta ferðaþjónustuna líta vel út.“
Í viðtalinu kveðst hann hafa hitt hótelstjóra sem sagði eftirfarandi um Íslendinga: „Það þýðir ekkert að ráða Íslendinga því þeir þurfa alltaf að vera í fríi.“
Nánar má lesa um þetta mál í Fréttablaðinu (PDF) í dag og á vef Fréttablaðsins.