„Ég held að það sé mjög líklegt að einhvern tímann eftir áramótin verði bóluefni markaðssett fyrir börn allt niður í sex mánaða. Þá á eftir að taka ákvörðun, og sóttvarnayfirvöld stýra því, hverja veljum við að bólusetja. Ég tel núna eins og áður að leiðin til að verja þjóðfélagið okkar sé að bólusetja sem flesta.“ Þetta sagði Valtýr Thors barnasmitsjúkdómalæknir í Síðdegisútvarpinu á Rás 2 í dag.
Hann segir bólusetningar barna skynsamlega leið til að forða þeim frá veikindum og langvarandi eftirköstum Covid-19. Sífellt fleiri dæmi væru þess erlendis að börn veiktust alvarlega og búast mætti við að slíkt gerðist hér.
„Það má alveg búast við því að slíkt komi upp hér á Íslandi fyrr eða síðar. Besta vörnin gegn því er bólusetningar. Einnig myndi það koma í veg fyrir langvarandi áhrif,“ sagði Valtýr.