Valli Sport og Ríkiskaup í hár saman: Vilja að dómari sé rannsakaður

Ríkiskaup segja umfjöllun fjölmiðla um kæru á hendur Ríkiskaupa vegna útboðs kynningarherferðarinnar „Ísland saman í sókn“ fela í sér rangfærslur.

Er þar sérstaklega vísað til ummæla Valgeirs Magnússonar, oft nefndur Valli Sport, stjórnarformanns auglýsingastofunnar Pipar/TBWA.

Lenti tillaga auglýsingastofunnar í öðru sæti í umræddu útboði á eftir tillögu bresku auglýsingastofunnar M&C Saatchi og íslensku auglýsingastofunnar Peel.

Hafa stjórnendur Pipar/TBWA og fleiri í auglýsingageiranum hérlendis gagnrýnt það harðlega að verkefnið fari til erlends aðila. 

1,5 milljarður króna

Íslenska ríkið mun verja alls 1,5 milljarði króna í herferðina sem er ætlað að kynna Ísland sem ferðamannastað á erlendum mörkuðum. Þar af munu 300 milljónir fara til auglýsingastofa.

Tillaga M&C Saatchi og Peel hlaut 87,17 stig samanborið við 86,35 stig Pipar/TBWA og því ljóst að litlu munaði á því að hver fengi verkefnið.

Í útvarpsþættinum Bítinu á Bylgunni í gær vildi Valgeir meina að ekki hafi verið gætt jafnræðis í ýmsum þáttum útboðsins, til að mynda í sambandi við virðisaukaskatt og að bókhaldsmisferli bresku stofunnar hefði átt að útiloka M&C Saatchi frá því að fá verkefnið.

Efast um hæfi dómara

Þá setur Valgeir spurningamerki við hæfi eins dómaranna í þeirri þrettán manna dómnefnd sem mat tillögurnar og krefst þess að hæfi hans verði rannsakað.

Tillaga Pipar/TBWA hafi fengið topp einkunn hjá tólf dómurum en einungis þrjá af tíu frá einum þeirra sem verði til þess að stofan tapi útboðinu.

Þá ýjaði Valgeir að því að umræddur dómari gæti verið með tengsl við M&C Saatchi, þó hann vildi ekki fullyrða neitt um það.

„Við erum að fara fram á að það sé rannsakað.“

„Ef þetta er sá sem við höldum að þetta sé þá eru til tengsl, já. En svo skiptir það máli fyrir okkur, að við verðum að vita að það sé nákvæmlega sá sem við teljum að þetta sé áður en við förum að koma með slíkt fram,“ sagði Valgeir í Bítinu í gær.

Segja vegið að heiðri dómnefndarinnar

Ríkiskaup hafna þessum ásökunum og segja „vegið að heiðri dómnefndarinnar með ásökunum um tengsl ónefnds nefndarmanns við M&C Saatchi.“

„Er gefið í skyn að hann hafi þess vegna gefið fyrirtæki viðmælanda lægri einkunn sem hafi ráði úrslitum um endanlegt val. Þessi staðhæfing er algjörlega tilhæfulaus,“ segir í tilkynningu frá stofnuninni.

Þá neita Ríkiskaup því að vitneskja um bókhaldsmisferlið hefði haft áhrif á niðurstöðuna.

„Þá hefur nefndur viðmælandi haldið því fram að ef dómnefndin hefði vitað af fyrrnefndri fjölmiðlaumfjöllun um meint brot M&C Saatchi hefði það haft áhrif á einkunnagjöf nefndarinnar. Hlutverk hennar var eingöngu að leggja faglegt mat á kynningar bjóðenda á grundvelli fyrirliggjandi valforsenda. Óheimilt er með öllu að víkja frá því. Slíkt hefði brotið gegn fjölmörgum meginreglum laga um opinber innkaup.“

Aug­lýsinga­stofan Pipar/TBWA hefur kært niðurstöðu Ríkis­kaupa til kæru­nefndar út­boðs­mála.