„Ég vona að draumar þessara barna og foreldra þeirra fái að rætast og þau geti stundað nám í Arnarskóla,“ segir Valgerður Sigurðardóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, í aðsendri grein sem birtist á vef Vísis í dag.
Óhætt er að segja að greinin hafi vakið talsverða athygli en þar varpar hún ljósi á þá staðreynd að fjölmörg börn, sem greind hafa verið með einhverfu, fá ekki skólavist í Arnarskóla í Kópavogi.
Eini skólinn með slíka þjónustu
Valgerður segir að skólinn sé starfræktur fyrir einhverf börn og hafi þá sérstöðu að þar er veitt heildstæð þjónusta.
„Börnin eru í sínu umhverfi, með sama starfsfólkið í kringum sig alla virka daga, allan ársins hring. Þetta öryggi og þessi rútína í daglegu lífi er nauðsynleg fyrir sum fötluð börn til að þau nái að þroskast og dafna. Arnarskóli er eini skólinn á landinu sem veitir slíka þjónustu,“ segir hún en skólinn hefur verið starfræktur í tvö ár og því hefur ekki verið framkvæmt svokallað ytra mat á starfsemi hans.
Valgerður bendir á að slíkt mat fari aldrei fram fyrr en á fjórða starfsári.
„Í dag eru fjögur Reykvísk börn í Arnarskóla og fleiri sem hafa sótt um skólavist þar. Reykjavíkurborg hefur nú verið að synja þessum börnum um skólavist þrátt fyrir það að foreldrar og sérfræðingar telja að hagsmunum barnanna sé best gætt með því að veita þeim skólavist í Arnarskóla.“
Ekkert ytra mat á skólanum
Valgerður segir að Reykjavíkurborg hafi borið fyrir sig að ytra mat hafi ekki farið fram og því sé hægt að synja þeim umsóknum sem berast um skólavist í Arnarskóla.
„Sú krafa að ytra mat fari fram áður en fleiri nemendur verði sendir í Arnarskóla er án fordæma, óraunhæf og verulega íþyngjandi fyrir börnin og fjölskyldur þeirra. Önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu hafa ekki verið að setja þetta fyrir sig og nemendur þaðan fá vist í Arnarskóla.“
Valgerður bendir á að ný menntastefna Reykjavíkurborgar beri yfirskriftina látum draumana rætast. Það séu því kaldar kveðjur sem þessi börn og foreldrar þeirra fá.
„Draumar foreldra þessara barna eru að hagsmunum barna þeirra sé best gætt með því að veita þeim skólavist í Arnarskóla. Þau sérfræðiteymi sem halda utan um þessi börn telja að skólavist í Arnarskóla sé það besta fyrir þau.“
Verið að mismuna börnum
Í ljósi þessa segir Valgerður það „óskiljanlegt“ að neita börnum með sérþarfir um skólavist í skóla sem allir telja að henti þeim best.
„Nú þegar eru Reykvískir nemendur í skólanum og því er hér verið að mismuna börnum með sérþarfir. Sjálfstæðismenn í skóla- og frístundaráði lögðu til 28. apríl að samningar við Arnarskóla verði endurskoðaðir og þeim börnum sem hafi sótt um skólavist í Arnarskóla fá að stunda þar nám. Ég vona að draumar þessara barna og foreldra þeirra fái að rætast og þau geti stundað nám í Arnarskóla.“