Val­gerður: Þú skuldar 902 þúsund krónur

„Skuldir hafa hækkað jafnt og þétt síðustu tíu ár og nú er svo komið að hver og einn Reyk­víkingur skuldar 902.156 krónur,“ segir Val­gerður Sigurðar­dóttir, borgar­full­trúi Sjálf­stæðis­flokksins, í að­sendri grein í Morgun­blaðinu í dag.

Val­gerður vísar þar í út­tekt sem birtist í Markaðnum fyrir skemmstu þar sem fram kom að heildar­skuld­bindingar A-hluta Reykja­víkur­borgar hafi numið ríf­lega 118 milljörðum króna um mitt ár 2020. Hafa skuldir á hvern borgar­búa meira en tvö­faldast á síðustu tíu árum ef miðað er við verð­lag hvers árs.

„Það er undra­vert þegar skulda­staða borgarinnar er skoðuð að heyra meiri­hlutann tala um að þessi gríðar­lega slæma skulda­staða komi til út af Co­vid. Hér er tíu ára upp­safnaður vandi sem er byrjaður að bíta fast,“ segir Val­gerður meðal annars og bætir við að síðustu tíu ár hafi ríkt ó­ráð­sía í fjár­málum borgarinnar. Peningum hafi verið eytt hraðar en þeir hafa komið inn.

„Það er merki­legt, þar sem sögu­legt tekju­góð­æri hefur verið. Það sjá það allir að vandinn er gríðar­legur og hann varð ekki til á nokkrum mánuðum líkt og meiri­hlutinn heldur núna fram. Vissu­lega hefur Co­vid á­hrif á stöðuna en því miður var Reykja­víkur­borg það illa rekið sveitar­fé­lag fyrir að búið var að senda ósk um neyðar­að­stoð til ríkisins strax á vor­dögum, enda aug­ljóst að fjár­hags­leg ó­stjórn hefur verið í sveitar­fé­laginu um langt skeið,“ segir Val­gerður meðal annars.