Valgerður Sigurðardóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir að nú þegar tekið er að skyggja verði hún vel vör við það í ljósaskiptunum hversu mikilvægt það er að hafa góða götulýsingu.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í aðsendri grein Valgerðar í Morgunblaðinu í dag.
Valgerður bendir á að árið 2015 hafi tímalengd götulýsingar verið stytt í Reykjavík.
„Þegar lýsingin var stytt var það gert í sparnaðarskini, nú er hins vegar búið að LED-væða töluvert magn af ljósastaurum. Það breytir mjög miklu og dregur verulega úr kostnaði vegna lýsingar. Því má auðveldlega samhliða áframhaldandi aukinni LED-væðingu lengja tíma götulýsingar kvölds og morgna,“ segir Valgerður.
Hún segir að kostnaður við það að lengja aftur tíma götulýsingar verði ekki jafn mikill og áður.
„Vegna þessa óverulega kostnaðar væri því auðvelt að lengja þann tíma sem kveikt er á lýsingu. Góð götulýsing er öryggisatriði bæði fyrir gangangi, hjólandi og þá sem akandi eru og því er ekkert til fyrirstöðu að samþykkja tillögu sjálfstæðismanna sem lögð var til í janúar árið 2019 í skipulags- og samgönguráði að auka lýsingu kvölds og morgna.“
Valgerður segir að þeirri tillögu hafi ekki verið svarað og góður bragur væri á því að taka hana til afgreiðslu og auka við götulýsinguna í Reykjavík. Með því mætti auka öryggi allra sem eru á ferðinni í ljósaskiptunum.