Valgerður í kröppum dansi: „Maður skammast sín fyrir að koma sér í svona aðstæður“

Valgerður Árnadóttir, varaþingmaður Pírata og formaður Samtaka grænkera á Íslandi, var í afar áhugaverðu viðtali við Sigurlaugu Jónasdóttur í þættinum Segðu mér á Rás 1 í vikunni.

Valgerður var ung, eða aðeins 15 ára, þegar hún flutti til Mílanó til að starfa sem fyrirsæta. Þetta gerðist strax eftir 10. bekk og sinnti Valgerður meðal annars verkefnum fyrir H&M auk þess að vera í sjónvarpsþáttum og ganga pallana á tískusýningum. Auk þess að starfa í Mílanó var Valgerður með annan fótinn í London og þar kynntist hún óvænt hópi sem tengist rússnesku mafíunni þar í borg.

Á þessum tíma var Valgerður aðeins 17 ára og var höfuðpaur hópsins mjög hrifinn af henni.

„Ég hélt honum í vissri fjarlægð og passaði mig á honum. En hann hætti ekki að reyna,“ sagði Valgerður en til að gera hosur sínar grænar fyrir henni hafði hann samband við eina stærstu umboðsskrifstofuna í London sem var með fyrirsætur á borð við Naomi Campbell, Claudiu Schiffer og Kate Moss á sínum snærum.

Svo fór að skrifstofan bauð Valgerði samning og var hún við það að skrifa undir þegar faðir hennar, sem fylgdist vel með henni frá Íslandi, hafði samband. Tjáði hann henni að afi hennar væri dáinn og hún þyrfti að koma heim til Íslands í jarðarför.

Valgerður lýsir því í viðtalinu að hún hafi verið treg til í fyrstu en látið skrifstofuna síðan vita að hún ætlaði heim til Íslands og kæmi aftur til London eftir tvær vikur.

„Þá varð allt brjálað. Þessi rússneski auðkýfingur hótar mér öllu illu,“ sagði Valgerður en Rússinn vildi meina að hann hefði gert allt fyrir hana og hún skyldi ekki dirfast að fara til Íslands. Ef hún kæmi ekki eftir tvær vikur myndi hann koma til Íslands og sækja hana.

Í viðtalinu sagði Valgerður að hún hafi ekki þorað að segja fjölskyldu sinni frá þessu. Hún fór þó ekki aftur til London – eðlilega kannski – og sagði foreldrum sínum ekki frá þessu fyrr en löngu síðar.

„Eins og maður gerir. Maður skammast sín fyrir að koma sér í svona aðstæður,“ segir Valgerður í viðtalinu. „Ég var bara hrædd um að hann myndi koma. Þessi maður átti einkaflugvél og gat bara komið ef honum sýndist. Hann var með mjög mikil völd í London.“

Hún sagði skilið við fyrirsætubransann 18 ára gömul og sér ekki eftir neinu.

Í viðtalinu ræðir Valgerður einnig um áföll sem dundu yfir árið 2021. Viðtalið má nálgast í heild sinni hér á vef RÚV.