Valgarður vill að skattgreiðslur hans verði lækkaðar þar sem hann stendur utan trúfélaga

Tónlistarmaðurinn Valgarður Guðjónsson hefur sent erindi til Umboðsmanns Alþingis þar sem hann fer fram á að skattgreiðslur hans verði lækkaðar sem nemur greiðslu til trúar- og lífsskoðunarfélaga.

Valgarður segir að fjármálaráðuneytið svari ekki lengur erindi hans um lækkun skattgreiðslu vegna sóknargjalda og því hafi næsta skref verið að leita til Umboðsmanns.

Valgarður hefur fjallað um þetta á bloggsíðu sinni að undanförnu og þá var hann í viðtali við RÚV í morgun. Segir Valgarður að fyrir það fyrsta þyki honum óeðlilegt að ríkið standi í rekstri trúfélaga. Og þar sem hann stendur utan trúfélaga sé það mannréttindabrot að fólk utan þeirra greiði sóknargjald eins og meðlimir þeirra.

„Meðlimirnir borga ekki þessar greiðslur, það borga þetta allir. Mér finnst að mínir peningar eigi ekki að fara í þetta ef ég er ekki í trúfélagi,“ segir hann við RÚV. Þá segir hann á bloggsíðu sinni:

„Þá er einhver undarleg rökleysa, ef ekki ranghugmynd, jafnvel vanþekking, að minnsta kosti grundvallar misskilningur, að fyrst ekki sé hægt að tengja skattgreiðslur einstaklings við ákveðin útgjöld þá sé ekki hægt að veita lækkun á skattgreiðslum. Það er óumdeilt að útgjöld ríkissjóðs eru lægri vegna þess að ég er ekki skráður í lífsskoðunarfélag. Þess vegna er ekkert sem kemur í veg fyrir að hægt sé að lækka greiðslur mínar sem þessu nemur.“