Valdís selur draumahúsið: Má bjóða þér hús á 4,9 milljónir? Sjáðu myndirnar

Valdís Eva Hjaltadóttir, forstöðumaður samfélagsmiðstöðvar Blábankans á Þingeyri, hefur ákveðið að selja smáhýsi sem hún hefur búið í síðastliðin þrjú.

Segja má að um sé að ræða einbýlishús á hjólum því húsið er þrettán fermetrar og í því er allt það helsta sem þarf fyrir venjulegt heimilishald.

Valdís segir í samtali við Hringbraut að ástæða sölunnar sé sú að hún ætli að stækka við sig. Hún kann vel við sig í smáhýsum en nýja húsið er nokkuð frábrugðið því gamla, það er til dæmis stærra og léttara enda úr trefjaplasti. Valdís hannaði sjálf nýja húsið undir merkjum Vegdísar.

Húsið sem nú er til sölu var byggt með trégrind og bárujárni eins og venjulegt hús en nýja húsið er byggt úr trefjaplasti og er því bæði léttara og sterkara.

Húsið sem Valdís hefur ákveðið að selja er skráð sem hjólhýsi, er 3,3 tonn, og eru sömu lánamöguleikar og tryggingar eins og í venjulegu hjólhýsi. Það heldur vel hita og þolir allt að fimmtán gráðu frost úti. Sex fermetra svefnloft er í húsinu og að sjálfsögðu ísskápur, bakaraofn, gashellur, rafmagnsofn, klósett, sturta, handlaug, þvottasnúrur, hægindastóll, borð og stólar svo eitthvað sé nefnt.

Í auglýsingu Valdísar, sem birtist á vef Bland.is, kemur fram að hún hafi búið í húsinu undanfarin þrjú ár og haft góða reynslu af því. Það ruggar aðeins í verstu veðrunum en það hefur þó aldrei þurft að tjóðra það niður. Segir Valdís að hún hafi yfirleitt dvalið ein í húsinu en þó getað tekið á móti nokkrum gestum og vel hafi farið um alla.

Í auglýsingunni kemur fram að smáhýsið sé fullkomið fyrir heilsársbúsetu, skammtímaútleigu á svæðum sem eru utan þjónustu á veturna, sem auka fermetrar við sumarhúsið, verslun á hjólum eða sem starfsmannaaðstaða. Möguleikarnir eru margir.

Valdís segir að margir hafi lýst áhuga á smáhýsinu en nauðsynlegt sé að koma inn í það til að átta sig betur á möguleikunum. Nýja húsið er um 18 fermetrar og vonast hún til þess að það verði klárt til búsetu í sumar og þá verði hægt að sýna hugsanlegum kaupendum það. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á vefnum Vegdis.is. Þeir sem eru áhugasamir um eldra húsið geta kynnt sér það nánar hér.