Valdimar upp­lifði vand­ræða­legt augna­blik á Spáni: „Ég fór að há­gráta, orðinn hálf­full­orðinn“

Undan­farin ár hefur lífið legið upp á við hjá Valdimari Guð­munds­syni söngvara. Hann braust út úr viðjum slæms á­vana, kynntist ástinni og eignaðist fjöl­skyldu. Þar að auki hefur hann haft nóg að gera í tón­listinni og hefur slegið í gegn í nýju hlað­varpi. Valdimar er í ítar­legu helgar­við­tali í helgar­blaði Frétta­blaðsins.

Í mars síðast­liðnum byrjuðu Valdimar og gítar­leikarinn Örn Eld­járn með hlað­varpið Lista­menn í Hljóð­kirkjunni. Fara þeir þar yfir sína topp 10 lista yfir sósur, bíla, tölvu­leiki, gítar­sóló, kok­teila, krydd og allt sem þeim dettur í hug að raða. Meira að segja sjálfum boð­orðunum. Hefur hlað­varpið vakið at­hygli, einkum vegna þess hversu opnir og sjálfs­hæðnir stjórn­endurnir eru.

„Við Örn höfum þekkst síðan í Lista­há­skólanum þegar við vorum að læra tón­smíði,“ segir Valdimar en þeir hafa spilað mikið saman, einkum í hljóm­sveitinni Valdimar sem Örn gekk inn í. „Á ferða­lögum okkar drepum við oft tímann með því að gera topp 10 lista og okkur datt í hug að ein­hverjum gæti þótt gaman að heyra þetta.“

Valdimar segir það ekki hafa verið með­vitað að vera svo opnir, meðal annars um vand­ræða­leg augna­blik í þeirra lífum. Þannig tali þeir vana­lega sín á milli og eru ekkert að fela hvernig þeir eru. Rifjar Valdimar eina slíka sögu upp.

„Eitt sinn, þegar ég var um sex­tán ára gamall, var ég að spila körfu­bolta með vini mínum og fékk boltann fast beint framan á löngu­töng. Fremsta kjúkan brotnaði og nöglin vísaði beint upp í loftið. Ég þurfti að fara beint til læknis sem dró nöglina út,“ segir Valdimar.

„Nokkrum vikum seinna fórum við fjöl­skyldan út til Spánar. Þá var ég ný­búinn að losna við um­búðirnar af puttanum en enn þá aumur. Við fórum í safarí ferð þar sem voru strútar og leið­sögu­maðurinn sýndi okkur hvernig við gætum gefið þeim brauð úr lófanum.“

Var Valdimar eitt­hvað smeykur við þetta en móðir hans eggjaði hann til þess að mata strútinn fyrir mynda­töku.

„Ég lét til leiðast og auð­vitað beit strúturinn í brotna puttann,“ segir hann. „Þetta var bæði svo sárt og mér brá svo mikið að ég fór að há­gráta, orðinn hálf­full­orðinn. Í hópnum okkar var líka stelpa á mínum aldri sem gerði þetta at­vik allt helmingi verra og vand­ræða­legra.“