Það verða líklega seint allir sammála um það hvort Íslendingar séu yfir höfuð góðir ökumenn eða ekki. Tónlistarmaðurinn Valdimar Guðmundsson lenti í einum í gær sem vafalaust fellur í seinni flokkinn – að minnsta kosti í hans huga.
„Ég stoppaði á nýju biðskyldunni á Skúlagötu fyrir bíl sem var í rétti. Fyrir aftan mig lá svo einhver á flautunni og var gríðarlega pirraður. Mér fannst þetta svo pirrandi því að nú heldur þessi gaur að hann hafi verið að díla við kjána í umferðinni þegar hann sjálfur var kjáninn,“ segir Valdimar.
Valdimar virðist ekki sá eini sem hefur lent í þessu á umræddum gatnamótum.
„Keyri þarna á nánast hverjum degi og lendi allt of oft í þessu,“ segir í einni athugasemd.
Ég stoppaði á nýju biðskyldunni á Skúlagötu fyrir bíl sem var í rétti. Fyrir aftan mig lá svo einhver á flautunni og var gríðarlega pirraður. Mér fannst þetta svo pirrandi því að nú heldur þessi gaur að hann hafi verið að díla við kjána í umferðinni þegar hann sjálfur var kjáninn
— Valdimar Guðmundsson (@ValdiMumma) December 13, 2021