Tónlistarmaðurinn Valdimar Guðmundsson var gestur Auðuns Blöndal í þættinum Tónlistarmennirnir okkar sem sýndir eru á Stöð 2 um þessar mundir.
Brot úr þættinum birtist á vef Vísis í morgun og þar er meðal annars haft eftir Valdimar að hann hafi ekki alltaf búist við því að verða sá fjölskyldumaður sem hann er í dag. Valdimar er í sambúð með Önnu Björk Sigurjónsdóttur og eiga þau saman ungan son.
Í þættinum fór Valdimar meðal annars yfir þetta, það er föðurhlutverkið, ástina og að sjálfsögðu tónlistina sem er hann þekktastur fyrir.
„Ég er mjög hamingjusamur maður. Fyrir nokkrum árum síðan hugsaði ég, ég verð kannski bara alltaf einn og það er allt í lagi. Sem er bara fínt og ég geri bara hlutina eins og þeir eru núna,“ sagði Valdimar meðal annars í þættinum.
Valdimar sagðist hafa hugsað með sér að gaman yrði að eignast fjölskyldu.
„Það er ekkert svo langt síðan að það að eignast fjölskyldu væri mjög fjarlægur möguleiki. En svo einhvern veginn gerðist það. Ég hitti stelpu sem mér fannst ótrúlega skemmtileg. Svo byrjum við saman og allt í einu er kominn lítill strákur og ég kominn með fjölskyldu. Allt hefur meiri vigt í dag,“ segir hann meðal annars.
Valdimar var einmitt í áhugaverðu og opinskáu viðtali í Fréttablaðinu fyrir rúmu ári en þá fór hann meðal annars yfir það hvernig hann kynntist Önnu Björk í gegnum Tinder.