Valdimar Númi settur milli steins og sleggju: „Það er rosa erfitt að á­kveða sig“

Valdimar Númi Hjalta­son sem fékk heila­blæðingu í júlí 2019 og endaði í hjóla­stól vegna veikidnanna segist vera kominn með íbúð loksins en hann hefur búið hjá öldruðum föður sínum í Hafnar­firði vegna þjónustu­korts hjá ríki og sveitar­fé­lagi.

Þrátt fyrir að vera kominn með íbúð má segja að Númi sé á milli steins og sleggju því ef hann flytur inn í íbúð á vegum Sjálfs­bjargar í Reykja­vík þá dettur hann út af bið­lista eftir fé­lags­legu hús­næði hjá Hafnar­fjarðar­bæ.

„Þá verð ég í þrjá­tíu fer­metra stúdíó íbúð það sem eftir er,“ segir Númi í sam­tali við Frétta­blaðið.

Ó­fyrir­sjáan­legir bið­listar

Frétta­blaðið greindi frá sögu Núma í lok febrúar síðast­liðinn. Númi hefur verið á bið­lista eftir hús­næði hjá Hafnar­fjarðar­bæ en hann hefur ekki hug­mynd um hve­nær röðin kemur að honum þar sem bið­listarnir eru ekki fyrir­sjáan­legir og enginn getur sagt til hvar hann stendur í röðinni.

„Þetta er rosa erfitt að á­kveða sig og hugsa, maður þarf að hugsa eins og skák­maður svona tíu leiki fram í tímann,“ segir Númi um hús­næðis­málin en bætir við að hann sé búinn að skrifa undir leigu­samning. Hins vegar sé hann hikandi um fram­haldið.

Býr hjá föður sínum

Þann 13. júlí 2019 var Númi að fagna plássi sem hann hafði fengið á frysti­togara. Um kvöldið fékk hann mikinn höfuð­verk og endaði á bráða­mót­tökunni. Eftir langa bið kom í ljós að hann hafði fengið heila­blæðingu sem leiddi niður í mænu­göng. Þremur að­gerðum síðar endaði Númi í hjóla­stól í febrúar 2021.

Í nóvember síðast­liðinn sagði Númi skilið við maka sinn eftir sjö ára sam­band. „Sam­bönd endast ekkert sér­stak­lega vel þegar annar aðilinn er í stans­lausum sárs­auka,“ sagði Númi í sam­tali við Frétta­blaðið í febrúar og kvaðst hann heppinn að hafa fengið inni hjá föður sínum.

Hús­næðið sem faðir Núma býr er þó ekki kjörið fyrir ein­stak­ling í hjóla­stól en Númi hefur til að mynd þurft að baða sig í Sala­laug þar sem ekki er að­gengi fyrir það í íbúð föður hans.