Valdimar fékk óvænt símtal frá 87 ára konu í gær

Tónlistarmaðurinn Valdimar Guðmundsson upplifði ánægjulegt augnablik í gær þegar 87 ára gömul kona hringdi í hann. Valdimar segir frá þessu á Twitter-síðu sinni og er óhætt að segja að um jákvæða og skemmtilega örsögu sé að ræða.

„Ég elska þegar fólk er næs. Rétt í þessu hringdi 87 ára gömul kona í mig. Hún þakkaði mér kærlega fyrir músíkina og sagðist hlakka svo til að mæta á tónleika hjá okkur í Valdimar á morgun í Bæjarbíói og bað um óskalag og allt,“ segir Valdimar í færslu sinni. Hann bætir við að umrætt lag hafi að vísu ekki verið frá hljómsveitinni en samt hafi símtalið verið ánægjulegt.

Valdimar er í hópi okkar allra bestu tónlistarmanna og er þekktur fyrir einlæga framkomu sína. Í kvöld fara einmitt fram 10 ára afmælistónleikar hljómsveitarinnar, en fyrsta plata sveitarinnar kom út árið 2010 og síðan þá hafa fjórar plötur litið dagsins ljós.