Tónlistarmaðurinn Valdimar Guðmundsson birti stórskemmtilega mynd og frásögn á Twitter-síðu sinni um helgina.
Valdimar segir frá því að hann hafi verið á leiðinni heim til sín frá Kópavogi þegar hann fór að velta fyrir sér hvað hann gerði við símann sinn.
Hann var þó ekkert að stressa sig á því enda var síminn tengdur við bluetooth-búnað bílsins sem gefur að minnsta kosti til kynna að síminn sé þokkalega nálægt.
Ætla má að Valdimar hafi rekið upp stór augu þegar hann steig út úr bílnum og sá hvar síminn var.
„Fann hann svo þegar ég kom heim. Ég er sem sagt kjáni,“ segir þessi frábæri tónlistarmaður sem er væntanlega einnig ágætur bílstjóri, sé litið til þess að síminn hélst á sínum stað alla leið.