Valdimar Erni brugðið: „Full­yrðingar um mitt ástar­líf“ – „Hversu bilað er fólk orðið?“

„Eru í al­vöru ein­hverjar mann­eskjur úti í bæ að smokra sér inn í ein­hver sam­töl undir fölsku flaggi og segja alls­konar ó­geðs­lega hluti um fólk,“ segir Valdimar Örn Flygen­ring, leið­sögu­maður og leikari, á Face­book-síðu sinni.

Valdimar Örn segir að hann hafi lent í ó­trú­legri upp­lifun á Face­book í kvöld þegar maður að nafni Hannes Ólafs­son fór að skrifa at­huga­semdir við færslu frá honum. Segir Valdimar að þá hafi upp­hafist ó­trú­legt sam­tal þar sem hann var sakaður um alls­konar hluti.

„Full­yrðingar um mitt ástar­líf og ég veit ekki hvað og hvað. Svo áttaði ég mig á því að þetta var senni­lega svo­kallað tröll og örugg­lega fleiri en ein manneskja sem skrifaði undir þessu nafni. Hversu bilað er fólk orðið?“

„Ég veit hvað þú hefur verið að gera“

Nettröll eru ein­staklingar sem gera sér að leik að vera með leiðindi eða efna til ill­inda og rifrildis á netinu, yfir­leitt nafn­lausir eða undir dul­nefni, eins og segir á vef­síðunni Orða­bókin.is.

Valdimar segir að hann hafi verið sakaður um að vera „drykk­felldur, gjald­þrota, ein­eltis­barna­níðingur með pín­ku­lítið typpi og helling af dómum á bakinu“ eins og hann orðar það.

„Þetta var farið að verða svo­lítið svona úúú.....ég veit hvað þú hefur verið að gera.... ég reyndi að fá upp úr þessu fyrir­bæri hver stæði á bak við þetta en mér var ekki svarað. Svo losnaði ég nú útúr þessu þegar ég sagðist bara vera barna­níðingur, og spurði hvort að þau hjónin væru komin úr fötunum, þá vildi þetta ekki tala lengur við mig......ja hérna hér,“ segir Valdimar sem er aug­ljós­lega undrandi enda á­sakanir sem eru al­gjör­lega úr lausu lofti gripnar. Hann segist gruna að tvær mann­eskjur hafi notað um­ræddan prófíl.

Heppinn að fá ekki furðufugla í heimsókn eins og Hörður

Færsla Valdimars hefur vakið tölu­verð við­brögð og hafa margir tjáð sig um hana. Einn segir til dæmis taka undir það að fleiri en ein manneskja hafi skrifast á við hann.

Tón­listar­maðurinn Hörður Torfa­son blandar sér einnig í um­ræðuna og segir hann Valdimar hrein­lega heppinn að hafa ekki fengið svona furðu­fólk í heim­sókn til að skemma eigur hans.

„Því hef ég líka orðið marg­oft fyrir. Það er bara ein leið; fá lög­reglu til að taka skýrslu en að öðru leiti leiða þetta hjá sér. Svörun eykur þeim að­eins mátt,“ segir hann.

Valdimar endar færsluna á þessum orðum: „Ef að sá/sú sem stóð fyrir þessu les þetta ætti sá hinn sami að leita sér að­stoðar, þetta er ekki gott karma.“