Valgerður Árnadóttir, formaður Samtaka grænkera og varaborgarfulltrúi Pírata, segir að leiguverð tveggja herbergja íbúðar á Seltjarnarnesi sé svipað og á sambærilegri íbúð á Manhattan.
Valgerður, eða Vala eins og hún er kölluð, greinir frá þessu á Twitter og segir:
„Leigusali vinkonu minnar sem leigir 2 herb. íbúð á Seltjarnarnesi var að hækka leiguna upp í 250.000 kr á mánuði. Svipað verð fæst fyrir álíka íbúð á Upper East side Manhattan. Getur einhver reynt að segja mér að þetta sé eðlilegt?“
Eins og gefur að skilja eru fæstir sem skrifa athugasemdir við færsluna þeirrar skoðunar að þetta ástand sé eðlilegt. Einn bendir á að Ísland sé eins og distópísk bíómynd þar sem þak yfir höfuðið er ákveðin lúxusvara. Næst á dagskrá hljóti að vera einkavæðing heilbrigðiskerfisins.
Þá bendir einn á að leiguverð í London sé einnig mjög hátt. „En það er engin afsökun fyrir svona okri. Margir fá varla þessa upphæð útborgað.“
Leigusali vinkonu minnar sem leigir 2 herb. íbúð á Seltjarnarnesi var að hækka leiguna upp í 250.000 kr á mánuði.
— Vala (Valgerður) Arnadottir (@ValaArna) December 28, 2021
Svipað verð fæst fyrir álíka íbúð á Upper East side Manhattan.
Getur einhver reynt að segja mér að þetta sé eðlilegt?