Vala Pálsdóttir, móðir barna sem stunda nám í Fossvogsskóla, lætur Dag B. Eggertsson, borgarstjóra Reykjavíkur, finna fyrir því í aðsendri grein sem birtist í Morgunblaðinu í dag.
Mikið hefur verið rætt um málefni skólans að undanförnu vegna mygluvandamála sem þar hafa komið ítrekað upp. Í nýrri skýrslu verkfræðistofunnar Eflu um ástand húsnæðis Fossvogsskóla var dregin upp dökk mynd af stöðu mála. Bent var á það í skýrslunni að megn skólplykt hafi mætt starfsfólki Eflu þegar það opnaði dyr inn í dælurými skólans, en í ljós kom að skólpdælur höfðu farið í sundur og flaut skólpið ofan á vatninu í opnum brunni. Í næsta rými er unnið með matvæli.
Í grein sinni bendir Vera á að börn í Fossvogsskóla hafi á síðustu tveimur árum sótt skóla við ýmsar aðstæður. Þá hafi foreldrar sett traust sitt á stjórnendur borgarinnar um að þeir gæti þess að aðstæðurnar séu hagfelldar fyrir börnin.
Álíka stór hópur og starfar á skrifstofunni
„Enginn átti von á því að stjórnendur og eftirlitsaðilar myndu horfa í hina áttina eða stinga gögnum djúpt niður í skúffu, vitandi að á hverjum degi sækja um 350 börn og 60 starfsmenn skólann í aðstæðum hættulegum heilsu þeirra. Kannski fannst borgarstjóra þetta ekki mikill fjöldi enda álíka stór hópur og starfar fyrir hann á skrifstofu borgarstjóra,“ segir hún.
Hún segir einnig ámælisvert að aðstoðarmaður borgarstjóra skuli grípa inn í með afgerandi hætti og fá sex aðra stjórnendur borgarinnar í lið með sér til að þagga málið niður eins og hún orðar það. Að sögn til að koma í veg fyrir að „móðursýki“ brytist út.
„Hvar er móðursýki að finna? Hjá þeim sem fórnaði heilsu barna til að gæta að áliti almennings á borgarstjóra eða foreldrinu sem bar hag barns síns fyrir brjósti? Sinnuleysi borgarstjóra er algjört. Ef borgarstjóri hefði staðið undir nafni og komið að degi til í skólann, hefði hann viljað setjast niður með börnunum og snæða hádegisverð sem matreiddur var yfir opinni klóaklögn?“
Hún bendir á að næsta vetur munu 1. til 3. bekkur Fossvogsskóla vera í færanlegum kennslustofum nærri Fossvogsskóla vegna framkvæmda. Þau séu þó enn innan hverfis. Aðra sögu sé að segja af nemendum í 4. til 7. bekk sem munu þurfa að sækja skóla sem er í um 11 kílómetra fjarlægð frá skólanum þeirra fram að næstu jólum hið minnsta. Tekur það börnin um 15 mínútur í greiðri umferð að komast þangað.
Tveir og hálfur tími á viku
„Það eru um 30 mínútur á hverjum degi eða 2,5 klukkustundir á viku. Það samsvarar þeim tíma sem stytting vinnuvikunnar er hjá öðrum. Nú þegar er ljóst að breytingar verða á hverjir munu annast kennslu og umsjón barnanna á næsta skólaári enda aðstæður ekki boðlegar starfsfólki frekar en börnunum. Það að glíma við heilsubrest og kvilla því tengdu er krefjandi. Ég velti því fyrir mér hvort borgin hafi hugsað sér að bæta kennurum þetta upp og tryggja bætur eða álagsgreiðslur vegna sérstakra aðstæðna yfir það tímabil. Það kann að verða áhyggjuefni hvort starfsfólk fáist til starfa við þær ömurlegu aðstæður sem börnin i Fossvogsskóla stunda nám.“
Vala bendir réttilega á að börn eigi að búa við öryggi og vísar hún í barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna máli sínu til stuðnings.
„Þetta hefur orðið undir hjá borgarstjóra og starfsliði hans. Það er enga móðursýki að finna í Fossvoginum en klóaklögn skólans rennur opin og óheft eins og síki sem betur hefði mátt stöðva í byrjun meints faraldurs i Fossvogi. Borgarstjóri verður að axla ábyrgð á þeim vanda sem hann hefur komið nemendum og kennurum Fossvogsskóla í með vanrækslu í viðhaldi og viðgerðum á skólahúsnæðinu.“