Hátt í fjörutíu manns komu saman á Austurvelli í dag til að mótmæla sóttvarnaaðgerðum stjórnvalda. Samkomubann miðast við tíu manns í dag og því ljóst að mótmælin sjálf hafi brotið gegn því.
Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn almannavarna, sagði í samtali við Fréttablaðið í dag að það væri sorglegt ef mótmælin yrðu til þess að smit næðu sér aftur á strik.
„Það er svo sem skiljanlegt að fólk hafi misjafnar skoðanir á hlutunum. Ég er allavega ekki sammála boðskapnum persónulega, enda er ég náttúrulega ekki hlutlaus. En það væri virkilega sorglegt ef það verða mótmæli gegn hörðum aðgerðum sem verða til þess að það fari önnur bylgja af stað.“
Hann býst við því að lögregla skoði málið.
Ljóst er að konan sem kom til landsins í gær frá Danmörku og neitaði að fara í sýnatöku eða sóttkví var mætt á mótmælin í dag.