Miklar og heitar umræður um það sem sagt er vera ljótasta hús landsins, að Mýrargötu 18 við Reykjavíkurhöfn, inni á Facebook hópnum„Arkitektúruppreisnin á Íslandi - Byggjum fallegt aftur.“
„Vá og ég sem var búinn að kjósa ljótasta húsið. Hér bætist eitt á listann hjá mér. Það er við höfnina í Reykjavík,“ skrifar Barði Guðmundsson nokkur.
Óhætt er að segja að heitar umræður skapist í kjölfarið. „Þetta hús er ekki ljótt,“ svarar Kristín Þóra Kristjánsdóttir nokkur. Guðfinnur Larsen Rúnarsson svarar henni og segir: „Nei, það er viðbjóður.“
Þá leggur Lilja nokkur Bjarnadóttir orð í belg: „Ég hef svo oft beðið eftir strætó beint á móti þessu húsi og hugsað "vá, þetta er örugglega ljótasta hús sem ég hef séð.“