„Ég dreg enga fjöður yfir að þau stóru mál sem okkar fólk hefur fjallað um að undanförnu hafa reynst starfsfólki erfið. Ekki síst fordæmalausar árásir á Helga Seljan vegna umfjöllunar um málefni Samherja,“ segir Stefán Eiríksson, útvarpsstjóri RÚV í samtali við Fréttablaðið um hóp þeirra frétta- og dagskrárgerðarfólks sem hafa hætt störfum hjá RÚV undanfarið.
Helgi Seljan, rannsóknarblaðamaður í Kveik, nú síðast í fyrradag. Viðbragð Samherja í kjölfar Namibíumálsins, að fara í áróðursherferð gegn Helga og RÚV, hafði neikvæð áhrif á fréttamenn RÚV, að sögn útvarpsstjóra.
„Það er ljóst að þetta var nýtt fyrir okkur öllum, enginn sá fyrir hvers konar brjálæði skapaðist,“ segir Helgi, spurður hvort skortur á stuðningi innan RÚV eftir Namibíumál Samherja hafi haft áhrif á þá ákvörðun hans að segja skilið við Ríkisútvarpið. „Auðvitað hefði verið hægt að taka öðruvísi og betur á málum þegar árásir Samherja hófust. Það er hins vegar eitthvað sem ég held að allir hafi lært af,“ segir Helgi.
Hann segist þó kveðja RÚV hvorki beiskur né bitur. „Ég vona að RÚV eins og allir aðrir fjölmiðlar standi betur í lappirnar ef eitthvað sambærilegt gerist á ný.“
Hægt er að lesa viðtalið hér.