Út­sölu­verðið það sama og fyrir mánuði síðan: „Ég biðst af­sökunar á mis­vísandi skila­boðum“

Borð í Hús­gagna­höllinni var aug­lýst á 59990 krónur þann 15. nóvember en er núna, hálfum öðrum mánuði síðar, er borðið sagt vera á út­sölu á 59992 krónur. Full­yrt er að það sé með 20 prósenta af­slætti.

Þar er sagt að borðið hafi áður kostað 74990 krónur en Guð­rún nokkur vekur at­hygli á þessu inn á grúppunni Vertu á verði á Face­book.

Mann­lífá­kvað að óska eftir við­brögðum frá Hús­gagna­höllinni og fékk svör frá Vig­fúsi Blæ Inga­syni verslunar­stjóra:

„Þetta er ný vara sem fór á heima­síðuna hjá okkur áður en varan kom. Þar var á­ætlað verð á borðinu 59.990,-. Borðið kom svo 15. nóvember. Þegar vörurnar koma til landsins sjáum við ná­kvæmt inn­kaupa­verð á vörunni á­samt öllum flutnings­tengdum gjöldum. 15.nóvember sjáum við að borðið var vit­laust verð­lagt hjá okkur og við löguðum verðið þann dag. Borðið er í raun búið að vera á 74.990,- frá því að það kom til okkar 15. nóvember.

Ég biðst af­sökunar á mis­vísandi skila­boðum. Við erum að reyna eins og við getum að sýna á heima­síðunni þær vörur sem eru væntan­legar til okkar en það getur verið erfitt með nýjar vörur þar sem rétt inn­kaupa­verð kemur ekki fyrr en varan er komin til okkar“.