Vegna bilunar í Hellisheiðarvirkjun jókst styrkur brennisteinsvetnis í heitu vatni á ákveðnum svæðum á höfuðborgarsvæðinu í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Veitur hafa sent frá sér.
„Búið er að finna bilunina og við teljum að búið sé að komast fyrir vandamálið sem varð þess valdandi að styrkur brennisteinsvetnis í heita vatninu jókst lítillega,“ segir í tilkynningunni en svæðin sem um ræðir eru Grafarholt, Norðlingaholt, Seláshverfi, Breiðholt, Kópavogur utan Lundarhverfis, Garðabær, þar með talið Álftanes, Hafnarfjörður og sumarbústaðahverfi í Miðdalslandi.
„Til að gæta ítrustu varkárni vilja Veitur benda fólki á að draga úr notkun heits vatns á framangreindum svæðum. Gott er að forðast staði þar sem gufa getur safnast upp í lokuðum rýmum, eins og óloftræstum sturtuklefum, eimböðum, þvottahúsum og almennt í litlum lokuðum rýmum þar sem heitt vatn rennur lengi og í miklu magni. Þetta á sérstaklega við um viðkvæma hópa.“
Þá segir að Veitur hafi talið sig hafa komist fyrir lekann í morgun en það reyndist ekki vera rétt. Viðbúið er að það geti tekið um það bil hálfan sólarhring fyrir áhrif bilunarinnar að losna úr dreifikerfinu.
„Mælingar hafa farið fram víða á svæðinu og hafa þær allar verið nokkuð undir viðmiðunarmörkum. Veitur eru í samstarfi við heilbrigðiseftirlit svæðanna og fylgjast vel með þróun mála, aukningin er ekki talin hættuleg heilsu almennings þó áhrifin geti verið óþægileg.“