Út­sending Hring­brautar liggur niðri: Frétta­vaktin á netinu

Út­sending Hring­brautar liggur niðri og mun liggja niðri á meðan raf­magns­laust er í húsa­kynnum sjón­varps­stöðvarinnar í mið­bæ Reykja­víkur.

Frétta­vaktin verður hins­vegar á sínum stað og mun birtast á vef Frétta­blaðsins á slaginu 18:30. Eins og frá hefur verið greint liggur raf­magn niðri í stórum hluta mið­bæjarins og vestur­bæjar að granda vegna bilunar.

Fram kemur á vef Veitna þegar þetta er skrifað að búist sé við því að raf­magns­laust verði á þessu svæði þar til á mið­nætti í kvöld.

Á­fram verður öflug frétta­þjónusta á vef Frétta­blaðsins eins og venjan er.