Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur sem heldur úti vefnum Blika.is, segir að skýrar vísbendingar séu um að fremur svalar vikur séu framundan hér á landi út mánuðinn.
Í frétt á vef sínum, þar sem stuðst er við upplýsingar frá Reiknimiðstöð evrópskra veðurstofa, kemur fram að ákveðin lína sé komin í spár út mánuðinn.
Segir Einar að spáð sé talsverðum lægðagangi fyrir sunnan og suðaustan land og gæti sú hringrás orðið viðvarandi út mánuðinn.
„Hún einkennist líka af því að háþrýstisvæðið sem alla jafna heldur sig suður á Atlantshafi að sumarlagi er spáð heldur vestar og nær Ameríku en í meðalárferði. Það hefur áhrif hér á landi. Í öðru lagi kemur fram skýr vísbending í mánaðarspánni um fremur svalar vikur hér á landi og að meira verði um N-lægar vindáttir,“ segir Einar sem brýtur spána niður eftir vikum.
Hann segir að ákveðin straumhvörf verði seint á fimmtudag og föstudag þegar snýst til norðanáttar. Þá er útlit fyrir svalt veður norðan heiða, innan við 5 gráður á laugardagsmorgun og frost til fjalla. Það hlýnar svo á sunnudag með lægð og rigningu.
Vikuna 14. til 21. júní verða fremur djúpar lægðir á hringsóli fyrir sunnan og suðaustan landið. Norðaustanátt verður ríkjandi og svalt í veðri framan af vikunni. Rigningar verða áberandi fyrir norðan og austan en úrkomulítið suðvestan- og vestantil.
Það verður áfram svalt vikuna 21. til 28. júní, að sögn Einars, en að sama skapi ekki mikil úrkoma.
„Þokusælt verður þá við sjóinn norðan- og norðaustanlands, en bjartir dagar sunnan og vestantil. Líklega þó talsvert um síðdegisskúrir. Það eru ekki metnar nema um 10-20% líkur á S-áttum með hlýindum.“