„Við höfum séð á eftirlitsmyndavélum að það hefur alveg legið við að það hafi verið rokið í prófdómarann. Það hefur ekkert annað verið eftir en að ráðast á prófdómarann – það hefur verið komið á það stig,“ segir Svanberg Sigurgeirsson, deildarstjóri ökuprófa hjá Frumherja, í Fréttablaðinu í dag.
Blaðið greinir frá því að lögregla hafi þurft að hafa afskipti af ógnandi mönnum sem falla á ökuprófi. Af þessum sökum hafa öryggishnappar verið settir í borð prófdómaranna, en fyrst og fremst er um að ræða karla frá löndum þar sem konur er settar skör lægra en karlar. Nokkur tilvik hafa komið upp eftir að öryggishnöppunum var komið fyrir. „Við höfum þurft að hringja á lögreglu,“ segir hann.
„Sem betur fer hefur ekki verið gerð nein árás en það hafa verið mjög ógnandi tilburðir þar sem fólk hefur verið hrætt,“ segir Svanberg og bætir við að hinir ofbeldisfullu nemendur séu þeir sem ná ekki prófinu og virðast telja á sér brotið. Ekki sé um að ræða ungu krakkana sem eru nýkomnir á bílprófsaldurinn heldur fullorðna karla.
„Þó að maður sé kannski hræddur við að segja það þá er þetta eiginlega mest bundið við útlendinga. Við verðum sérstaklega vör við þetta frá löndum þar sem menningin er þannig að konur eru skörinni lægra í stiganum heldur en karlmenn. Þeir líta á niður á konur, sérstaklega ef þær eru að segja þeim eitthvað sem þeim líkar ekki,“ segir Svanberg.