„Mér finnst áberandi hvað útlendingar sem maður talar við hér heima eru óöryggir og fullir efasemda um aðgerðir stjórnvalda,“ segir Gunnar Smári Egilsson, formaður Sósíalistaflokksins, í færslu á Facebook. Hann segir margar skýringar vera á því. „Það er erfitt að vera útlendingur þegar háskinn er mikill, það sést t.d. á að Íslendingar flykkjast nú heim, vilja vera með sínu fólki.“
Þá fylgist útlendingar með fréttum í sínum heimalöndum og finnist aðgerðir íslenskra stjórnvalda stinga þá í stúf, en víða er komið á ferðabann og mun harðari samkomubann. Fram kom á blaðamannafundi með sóttvarnarlækni, landlækni og yfirmanni almannavarna í dag að ekki væri ástæða að svo stöddu til að herða reglurnar en það komi til greina.
Gunnar Smári segir að það hljóti eitthvað að vera að upplýsingagjöfinni til innflytjenda. „Maður finnur það um leið og maður byrjar að tala við þetta fólk. Á meðan Íslendingar margir leggja fullkomið traust á sóttvarnaryfirvöld (án þess að ég vilji kvarta yfir því, ég elska íslenska þjóðarsál, er umræðan stundum eins og framvarðarsveit Víðis, Ölmu og Þórólfs sé að fara að vinna Júróvision, séu einu heilbrigðisyfirvöld veraldar sem skilja og geti tamið kórónavírusinn, að við séum kannski komin með enn eina íslensku leiðina, horft er til Íslands, sagði Guðlaugur Þór) þá tengja útlendingar núll við þetta,“ segir Gunnar Smári.
„Þú þarft að vera alinn upp hér til sökkva inn í þessa stemmingu og róast. Útlendingar þurfa staðreyndir og samanburð, ekki bara eitthvert Húúú eða kommaso. Við ættum kannski að halda upplýsingafundina líka á ensku.“